
Hnjúkamói 9 er staðsettur í miðbæ Þorlákshafnar þar sem stutt er í alla þjónustu. Leik- og grunnskóli eru í göngufæri og skammt frá er matvöruverslun, veitingastaðir, óþróttamannvirki og glæsileg sundlaug. Það er vandfundin betri staðsetning í Þorlákshöfn.
Fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir eru innan og utan bæjarmarkanna. Stutt er út í náttúruna og því ætti allt útivistarfólk að finna eitthvað við sitt hæfi í nágrenni bæjarins.
Mikil uppbygging hefur verið í Þorlákshöfn undanfarin ár. Samhliða því hafa umsvif aukist mjög sem hefur leitt til fjölgunar atvinnutækifæra og aukinnar þjónustu við íbúa.
